Nú hefur öllum nemendum, sem veitt hefur verið skólavist í fyrsta bekk næsta vetur, verið sent nýnemabréf. Þar kemur fram meðal annars að skóli verður settur 15. september. Greint er frá gjöldum og greiðslum sem nýnemar þurfa að inna af hendi. Sagt er frá því að nemendur geti tveir og tveir sótt um að vera saman í bekk og þurfi að senda beiðni um það á netfangið bekkir@ma.is fyrir 1. ágúst. Fleira er af gagnlegum upplýsingum í bréfinu, sem nálgast má hér.