Kæru nemendur.

Nú styttist í lokanámsmat annarinnnar og próf og við óskum ykkur öllum góðs gengis í þeim.   
Nokkur atriði til að hafa í huga:   

• Hvenær eru prófin?

-          Skoðið vel próftöflu í INNU. Athugið að próf hefjast ýmist kl. 9 eða 13 (og eitt kl. 12)

• Í hvaða stofu er prófið?

-          Stofutöflur birtast á upplýsingaskjáum að morgni prófdags

• Ef ég kemst ekki í próf vegna veikinda?

-          Það þarf að tilkynna fjarveru áður en próf hefst með því að skrá það í INNU eða senda póst á ma@ma.is

• Hverjar eru helstu prófreglur?

-          Munið að taka ekkert með ykkur inn í prófstofu annað en pennaveski og leyfileg hjálpargögn. Aðeins nauðsynleg ritföng og leyfileg hjálpargögn mega vera á prófborðinu. Geymið pennaveski á gólfinu við hliðina á sætinu ykkar meðan þið takið prófið 

-          Ekki má hafa nein snjalltæki á sér í prófsæti (hvort sem er sími, snjallúr eða önnur tæki). Hægt er að geyma þau í símakassa á kennaraborðinu. Stillið síma á flugstillingu

-          Yfirhafnir og töskur þarf að geyma annarsstaðar. Nýtið ykkur skápana ef þið hafið aðgang að þeim og fatahengin í anddyrinu

-          Óleyfileg hjálpargögn þýða ógilt próf

•          Verið stundvís, tillitssöm við samnemendur ykkar og fylgið prófareglum og fyrirmælum yfirsetukennara

•          Í prófstofu þarf að ríkja alger þögn. Fagkennarar koma tvisvar til þrisvar í stofuna meðan á prófi stendur og ef nemandi þarf að spyrja kennara þarf að rétta upp hönd. Athugið að kennari getur ekki aðstoðað nemendur við svör eða sagt til um hvort verið er að svara rétt

•  Hver er próftíminn?

-          Lágmarkstími inn í prófi er 30 mínútur

-          Próftími er mislangur en kemur fram í INNU og á upplýsingaskjám


• Skólinn verður opinn aukalega helgina 14. - 15. desember frá kl. 10-18 og hægt að nýta kennslustofurnar til lestrar. Skilyrðið er að umgengnin sé góð

• Mjög mikilvægt er að það sé þögn í skólanum á próftíma. Þess vegna eruð þið beðin um að safnast ekki saman í Kvosinni eftir próf ef það eru próf á Hólum. Allur hávaði getur verið mjög truflandi fyrir þá sem eftir eru í prófum. Hafið það í huga og sýnið tillitsemi

• Því miður er ekki hægt að heimila próftöku annars staðar en í MA, nema í algjörum undantekningartilfellum  

• Fyrstu einkunnir birtast í INNU 19. desember

• Sjúkra/forfallapróf eru 19. og 20. desember, og mögulega einhver 7. janúar, t.d. franska og þýska í 1. bekk


• Prófsýningar verða 8. janúar eða í fyrstu kennslustund