Nemendur í uppeldisfræði í MA efna til ráðstefnu í stofu G22 miðvikudaginn 16. maí klukkan 17.00. Á ráðstefnunni verður boðið upp á fjölbreytta dagskrá. Þar verða kynningar og fyrirlestrar um samkynhneigð, uppeldi, minnihlutahópa, drengi í námi, áhrifavalda, foreldra og Downs-börn svo og jafnrétti unglinga.

Á borðstólum verður kaffi með heimagerðum kræsingum.

Nánari dagskrá hér.