4A að leggja í hann til útlanda
4A að leggja í hann til útlanda

Nemendur á ferðamálakjörsviði málabrautar í fjórða bekk lögðu í kvöld af stað til útlanda. Ekið verður með rútu til Keflavíkur og í fyrramálið verður flogið af landi brott. Hvert verður þeim ekki ljóst fyrr en komið verður inn fyrir öryggisgæsluna í Leifsstöð.

Mikil spenna var í hópnum, í dag þegar verið var að ganga frá fyrirlestrum og kynna borgirnar í bekknum, og ekki síður í kvöld þegar safnast var í rútuna og lagt í hann.

Myndin var tekin síðdegis í dag þegar hópurinn fékk afhentan pakkann með ferðagögnunum.