Veður er orðið býsna gott á Akureyri, vind hefur lægt en búast má við að færð sé þung víða í hverfum vegna blota í snjó.

Skólahald hefst samkvæmt stundaskrá nú með morgni. Víða er hvasst og hálka mikil á vegum í nágrannasveitum og því eru allir beðnir að fara varlega og hætta ekki á óvissu á ferðum sínum.