Á undanförnum vikum hefur verið unnið að því að endurnýja vef MA. Nýi vefurinn er í vefumsjónarkerfinu Moya hjá Stefnu hugbúnaðarhúsi. Á ma.is eru nú talsvert fleiri og fjölbreyttari upplýsingar um skólann og starfsemi hans, nýtt kynningarefni og fjöldi mynda úr skólastarfinu.

Nær allar áfangalýsingar eru komnar á vefinn en kennsluáætlanir munu ekki birtast fyrr en á haustdögum. Bókalista má finna undir Námið - Bókalistar. Þeir eru ekki endanlegir en verða uppfærðir eftir því sem upplýsingar berast.

Á myndinni eru Guðjón H. Hauksson, Valgerður S. Bjarnadóttir, Hildur Hauksdóttir og Sverrir Páll á síðustu metrunum að ganga frá efni á ma.is