Það hefur varla farið fram hjá neinum að Vefur MA hefur verið í ólagi undanfarnar tvær vikur. Ástæða þess er sú að skemmdarverk var unnið með því að koma meinsemd í gagnagrunninn, fyrst á fimmtudag í fyrri viku og aftur á laugardaginn og sunnudaginn var. Því var ákveðið að búa til bráðabirgðavef sem nota mætti til loka skólaársins og þess er vænst að þessi dugi. Hér er einungis reynt að hafa það sem nauðsynlegast er á þessum tíma árs. Stefnt er að því að opna nýjan og fullkominn vef á nýjum grunni á haustdögum. Vefir skóla eins og MA skipta afar miklu máli í öllu skólastarfi og áfram verður stefnt að því að vefurinn megi þjóna öllum sem best.

.