Kennsla hófst að nýju við Menntaskólann á Akureyri mánudaginn 5. janúar. Segja má að fólk verði að láta hendur standa fram úr ermum því haustannarprófin hefjast nú í vikunni. Próftöfluna má sjá með því að smella á tengil á forsíðunni hér á Vef MA, en regluleg próf hefjast fimmtudaginn 8. janúar og síðasti prófdagur er þriðjudagurinn 20. janúar. Hægt er að sjá lista yfir prófstofur á töflunni í anddyrinu.

Próftími er mikill annatími hjá nemendum og kennurum.Nauðsynlegt er að nemendur gæti þess að vinna reglulega, hvílast reglulega og tryggja með hollu mataræði og hæfilegri hreyfingu að þeim líði sem best í prófum og nái tilætluðum árangri.

.