Heimur vonar, vetur
Heimur vonar, vetur

Um leið og Menntaskólinn á Akureyri sendir nemendum og starfsfólki svo og öðrum sem skólanum tengjast bestu óskir um farsælt nýbyrjað ár minnir hann á að skólastarf hefst samkvæmt stundaskrá miðvikudaginn 4. janúar. Kennsla og undirbúningur prófa verður í eina viku en haustannarpróf hefjast samkvæmt próftöflu miðvikudaginn 11. janúar í 4. bekk X en fimmtudaginn 12. janúar í öðrum bekkjum.