Mánudaginn 2. mars verður boðið upp á örnámskeiðið Viltu bæta námsárangur þinn?

Á námskeiðinu mun Anna Harðardóttir námsráðgjafi fjalla um aðferðir við tímastjórnun og skipulag

Námskeiðið er 40 mínútur og geta nemendur valið á milli tveggja tímasetninga, kl. 11.30 og klukkan 12.20 í stofu H8.

Nemendur eru hvattir til að mæta og gott að grípa með sér nesti.