Félag þýzkukennara á Íslandi efnir til samkeppni meðal framhaldsskólanema þriðjudaginn 7. mars. Keppnin fer fram í G26 kl. 10:00.

Tvö þyngdarstig verða í keppninni. Verðlaunahafar á stigi 1 eiga möguleika á þátttöku í Eurocamp í Þýskalandi í sumar. Verðlaunahafar á stigi 2 eiga möguleika á þátttöku í PAD-prógramminu í Þýskalandi í sumar.* Einnig verða veitt bókaverðlaun á báðum stigum. 

Þú getur tekið þátt ef þú …

  • ert íslenskur ríkisborgari
  • ert fædd(ur) á tímabilinu 1998 – 2007
  • hefur nú þegar lært þýsku í a.m.k. eina önn
  • hefur ekki áður hlotið styrk frá Þýskalandi
  • hefur þína þýskukunnáttu úr skóla og hefur ekki dvalið 6 vikur eða lengur í þýskumælandi landi

Úr umsögnum nemenda um Þýskalandsdvölina: “Bestu vikur lífs míns!” “Mjög vel skipulögð ferð!” “Þessi ferð var alveg ótrúleg upplifun!”

Nánari upplýsingar veita þýskukennararnir Harpa, Magga, Rannveig og Sigrún.