Vorannarpróf standa nú yfir í skólanum. Regluleg próf eru þessa viku og næstu og lýkur föstudaginn 3. júní. Sjúkrapróf verða mánudaginn 6. júní. Að því loknu verða endurtökupróf fyrir þá sem ekki hafa náð lágmarksárangri. Hvert endurtökupróf kostar 8.000 krónur.

Menntaskólanum á Akureyri verður að vanda slitið með athöfn í Íþróttahöllinni að morgni þjóðhátíðardagsins 17. júní.