Í dag er síðasti dagur reglulegra vorannarprófa þetta árið. Á morgun, fimmtudag, eru sjúkrapróf og endurtökupróf verða eftir helgina.

Allmargir nemendur hafa þegar lokið prófum sínum, en hluti nemenda í 2., 3. og 4. bekk er í prófum í dag auk nokkurra nemenda í uptöku í náttúrulæsi í 1. bekk.

Sjúkraprófin verða sem fyrr segir á morgun, fimmtudag, en endurtökuprof dagana 13. - 16. júní. Próftöflur verða birtar á ma.is jafnóðum og þær verða tilbúnar.

Einkunnabókin á INNU verður opnuð upp úr klukkan 13 í dag, miðvikudag.