07.01.2012
Ný heimasíða Heimavistar MA og VMA hefur verið opnuð. Markmiðið er að heimasíðan verði lifandi, fróðleg og skemmtileg og eru nemendur.
Lesa meira
02.01.2012
Um leið og Menntaskólinn á Akureyri sendir nemendum og starfsfólki svo og öðrum sem skólanum tengjast bestu óskir um farsælt nýbyrjað ár minnir hann á að skólastarf hefst samkævmt stundaskrá miðvikudaginn 4. janúar.
Lesa meira
20.12.2011
Menntaskólinn á Akureyri sendir nemendum sínum og starfsfólki fyrr og síðar og velunnurum öllum bestu óskir um gleðilega hátíð og farsæld á nýju ári.
Lesa meira
20.12.2011
Nemendur syngja nú á Sal og búa sig undir að komast í langþráð jólaleyfi. Þeir syngja dátt undir stjórn Jóhanns Axels konsertmeistara og ganga í kringum jólatré.
Lesa meira
16.12.2011
Nú þessa síðustu daga fyrir jólaleyfi fer fram könnun á því hvaða kjörsvið nemendur í 2. bekk á tungumála- og félagsgreinasviði vilja taka í 3. og 4. bekk.
Lesa meira
13.12.2011
Í dag standa nemendur í 3. bekk TX og U fyrir ráðstefnu í Kvosinni og fjalla þar um E-efnin svokölluðu. Út er gefinn bæklingur með samantekt um efnin og hann er á íslensku og ensku.
Lesa meira
13.12.2011
Í morgun tók ritstjórn Munins á móti nemendum með kakói og kleinum og í löngu frímínútunum var boðið upp á mjólk og randalín, enda var Muninn kominn í hús, ilmandi af prentsvertu.
Lesa meira
13.12.2011
Í morgun var fyrirlestur hjá nemendum á náttúrufræðihluta Íslandsáfangans, þegar Eiður Guðmundsson framkvæmdastjóri Moltu fræddi þá um sorp og mögulega nýtingu þess.
Lesa meira
12.12.2011
Nemendur í fjórða bekk félagsfræðibrautar, sem eru í aðferðafræðiáfanganum FÉL 403, halda málstofu í stofu G22 fimmtudaginn 15. desember.
Lesa meira
08.12.2011
Nemendur í þriðja bekk á náttúrufræði- og eðlisfræðibraut standa fyrir ráðstefnu um efnafræði í Kvosinni á þriðjudaginn kemur, 13. desember, klukkan 13.05-16.05.
Lesa meira